Fréttir af Gauta B Eggertssyni fyrir vini og fjölskyldu
23.03.2009 22:48:12 / gautieggertsson

að lofta út

Nú sýnist mér loksins vera farið að lofta dálítið út í íslenskri umræðu.

Um langa hríð var bara talað um einkavæðingu bankanna í hálfkveðnum vísum. Nú þegar Jóhanna hefur aflétt leynd af öllum skjölum forsætisráðuneytisins sem snúa að einkavæðingu bankanna er loksins komið ljós inní þennan skuggakima íslenskrar stjórnmálasögu. Greinar Morgunblaðsins um þetta eru ákaflega fróðlegar. Þótt margt hafi maður vitað hefur maður aldrei séð það svart á hvítu. Við lestur þessara greina sér maður líka hversu fáránlegt það var að leynd skildi hvíla yfir þessum gögnum. En að sama skapi skilur maður hvað menn vildu fela!

Almennt finnst mér þeir Björgólfsfeðgar koma betur út en ég bjóst við, en einkavæðing Búnaðarbankans er ennþá verri og subbulegri en ég hafði áttað mig á miðað við frásögn Moggans. Ég hygg að margt eigi enn eftir að koma í ljós í þeirri sögu en greinarflokkur Moggans er ágætis byrjun. Það er til dæmis mörgum spurningum ósvarað um hinn meinta 'erlenda fjárfesti´ í Búnaðarbankanum.

Það er líka ákaflega fróðlegt að sjá minnisblað sem Seðlabankinn skrifaði og las fyrir ráðamenn. Það varpar ágætu ljósi á vandamálin sem Seðlabankinn og ríkisstjórnin glímdi við. Raunar held ég að minnisblaðið sé ekki síst góður vitnisburður um það hversu alvarlegt vandamál Seðlabankinn sjálfur var á þessum tíma. En meira um það síðar. 

Líklega eru ein stærstu rökin fyrir að halda að Framsóknarmönnum og Sjálfstæðisflokknum frá ríkisstjórn að það myndi auðvelda verkefnið að lofta út úr öllum skúmaskoðum íslensks stjórnkerfis. Ég held að það myndi bæta sálarlíf þjóðarinnar meira en margt annað. Og nú er ég ekki að tala um einhverjar nornaveiðar eða dómsmál (þótt dómsmálin verði eflaust mörg), heldur einfaldlega að maður fái að vita almennilega hvað gerðist þessa síðustu áratugi.

------

Annað: Mikið óskaplega finnst mér gott að vita af Gylfa Magnússyni í stóli viðskiptaráðherra. Það sem ég hef séð frá honum fara, hvort heldur í rituðu máli, eða í sjónvarpi, finnst mér mjög gott. Ég vona að honum verði haldið í ríkisstjórn sem lengst.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  112  Alls: 303883
Dagatal
september - 2010
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
FyrriNæsti
Leitarbox